Tendrun ljósa jólatrjánna í Fjallabyggð er aflýst

Vegna samkomutakmarkanna verður ekki hefðbundinn viðburður í kringum tendrun ljósa jólatrésins , fyrstu helgi í aðventu, laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. nóvember. Þess í stað munu yngri börn leik- og grunnskóla gera sér ferð að jólatrjánum í desember og m.a. hengja á þau jólaskraut, syngja og jólasveinarnir koma í heimsókn með glaðning í poka.

Við minnum á rafrænt aðventudagatal á heimasíðu Fjallabyggðar og hvetjum alla sem ætla að bjóða upp á dagskrá/viðburð á aðventu, að skrá viðburðinn sinn þangað inn. Þannig geta bæjarbúar auðveldlega fylgst með öllu því sem um verður að vera í Jólabænum Fjallabyggð á aðventu.