Hannyrðakvöld á bókasafninu

Bókasafn Fjallabyggðar stendur fyrir hannyrðakvöldum á bókasafninu á Siglufirði annan hvern þriðjudag. Fyrsta kvöldið verður þriðjudaginn 14. janúar og síðan á eftirtöldum þriðjudagskvöldum;
28. janúar, 11. febrúar, 25. febrúar, 11. mars og 25. mars.
Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta með prjónana og heklið. 

Bókasafnið er opið á sama tíma, 20:00 - 22:00.