Hæfileikakeppni grunnskólans

Þátttakendur í hæfaleikakeppninni 2014
Þátttakendur í hæfaleikakeppninni 2014

Þann 29. janúar verður Hæfileikakeppni Grunnskóla Fjallabyggðar haldin í Tjarnarborg.
Þar geta nemendur komið og sýnt hvað í þeim býr, hvort sem er að syngja einir eða í hóp eða að sýna hæfileika sína á annan hátt.

Þeir sem ætla að taka þátt eru beðnir um að skrá sig hjá umsjónarkennara fyrir 20. janúar.
Hver nemandi getur aðeins tekið þátt í einu atriði.