Guðrún og Gunnlaug hlaupa í beinni útsendingu

Guðrún Ósk Gestsdóttir frá Siglufirði og Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir frá Ólafsfirði hafa fengið boð um að taka þátt í frjálsíþróttamótinu Reykjavík International sem fer fram í Laugardalnum þann 20. janúar nk. í framhaldi af Stórmóti ÍR. Á mótinu tekur þátt  besta frjálsíþróttafólk landsins í fullorðinsflokkum auk 10 erlendra keppenda.  Svo munu efnilegustu langhlauparar landsins í flokkum 13-14 ára etja kappi og hefur Guðrúnu og Gunnlaugu verið boðið að taka þar þátt í 800m hlaupi.  Mótið verður í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu á sunnudaginn, hefst kl. 14.30 en Guðrún mun líklega keppa um kl.16.00