Grunnskóli Siglufjarðar verðlaunaður

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra voru afhent í 13. sinn, 15. maí, við athöfn sem hófst kl. 16:00 í Þjóðmenningarhúsi við Hverfisgötu. Geir H. Haarde forsætisráðherra afhenti verðlaunin, í forföllum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra.
Grunnskóli Siglufjarðar hlaut Hvatningarverðlaun fyrir verkefnið Átak gegn einelti. Þetta verkefni hlaut 3 tilnefningar og hefur því vakið óskipta athygli í samfélaginu á Siglufirði.