Garðsláttur fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja

Fjallabyggð mun bjóða ellilífeyrisþegum og öryrkjum í Fjallabyggð upp á garðslátt í heimagörðum.

Þeir sem hyggjast nýta sér þessa þjónustu skrái niður nafn og heimilisfang:
Ólafsfjörður á bæjarskrifstofu (464-9200)
Siglufjörður í Ráðhúsi (464-9100)
(ath. sláttur er fyrir þá sem eru með lögheimili í Fjallabyggð) Garðsláttur kostar kr. 2.300.

Valur Hilmarsson
Garðyrkju- og umhverfisfulltrúi