Gagnatorg á heimasíðu Byggðastofnunar

Mynd: Byggðastofnun
Mynd: Byggðastofnun

Gagnatorg hefur verið opnað á vef Byggðastofnunar. Á Gagnatorginu eru lýðfræðilegar upplýsingar um íbúaþróun fyrir allt landið, eftir landshlutum, sveitarfélögum, kyni, aldri, ríkisfangi og fjölskyldugerð. Auk þess eru upplýsingar um íbúaveltu, framfærsluhlutfall og lýðfræðilega veikleika.

Gagnatorgið nýtist m.a. við stefnumótun stjórnvalda og sveitarfélaga í byggðamálum og við að meta árangur ýmissa áætlana s.s. sóknaráætlana og byggðaáætlunar. Framfærsluhlutfall og lýðfræðilegir veikleikar eru tveir mælikvarðar af sex sem skilgreindur eru í núverandi byggðaáætlun.

Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi (SASS) áttu frumkvæðið að því að setja upp Gagnatorgið. Gagnatorgið er í umsjá  Intenta ehf. 

Hnappur til að opna gagnatorgið er hægra megin á heimasíðu Byggðastofnunar. Einnig hægt að fara inn á gagnatorgið hér.