Fundur um flugmál á Akureyri frestað til fimmtudagsins 19. desember

Mynd: Markaðsstofa Norðurlands
Mynd: Markaðsstofa Norðurlands

Markaðsstofa Norðurlands stefnir að því að halda fund um flugmál á Hótel Kea á Akureyri fimmtudaginn 19. desember nk. frá kl. 12:00 – 14:00. Léttur hádegismatur verður í boði án endurgjalds, en nauðsynlegt er að skrá sig hér.

Þingmönnum norðaustur- og norðvesturkjördæmi er sérstaklega boðið til þessa fundar.

Dagskrá fundarins verður á þessa leið:

  • Kynning á greinargerð um ávinning af millilandaflugi um Akureyrarflugvöll – Jón Þorvaldur Heiðarsson
  • Kynning á nýrri úttekt á rekstri og mannvirkjum Akureyrarflugvallar – Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson
  • Umræður um stöðu Akureyrarflugvallar m.t.t. Samgönguáætlunar og fjárlaga

Hér má sjá greinargerð sem Jón Þorvaldur Heiðarsson, hagfræðingur og lektor við Háskólann á Akureyri, vann fyrir Markaðsstofuna. Þar er lagt mat á ávinning af millilandaflugi um Akureyrarflugvöll miðað við fjórar mismunandi sviðsmyndir.

Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt í umræðunum.

Fréttin er aðsend.