Fundur á Siglufirði um þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans

Fundurinn verður á Sigló hótel
Fundurinn verður á Sigló hótel

Landsbankinn efnir til fundar um uppfærða þjóðhags- og verðbólguspá bankans til ársins 2018. Á fundinum verður einnig fjallað um lausafjárstýringu fyrirtækja, aflandskrónuútboð Seðlabankans, uppbyggingu á Siglufirði og fleira.
Fundurinn verður haldinn á Sigló Hótel, Snorragötu 3, miðvikudaginn 1. júní  kl. 17:30.
Dagskrá fundar
·Ari Skúlason, hagfræðingur á Hagfræðideild Landsbankans, fer yfir uppfærða þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans.  Hann mun einnig  fjalla um þróun fasteignamarkaðarins um þessar mundir þar sem komið verður inn á stöðu og þróun á Norðurlandi og stærstu bæjum þar.
·Kristín Erla Jóhannsdóttir, forstöðumaður Eignastýringar Landsbankans, kynnir kosti í lausafjárstýringu fyrirtækja og leitast við að svara spurningunni: Hvers vegna er eignastýring fyrir alla?
·Rósa Björgvinsdóttir, forstöðumaður hjá Landsbréfum, fer yfir stöðu og þróun á innlendum verðbréfamörkuðum og fyrirhugað aflandskrónuútboð Seðlabankans.
·Þröstur Þórhallsson fasteignasali kynnir endurbyggingu á gamla gagnfræðaskólanum á Siglufirði sem hann hefur endurgert sem íbúðahúsnæði.
·Fundarstjóri verður Arnar Páll Guðmundsson útibússtjóri Landsbankans á Akureyri.

Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig á fundinn á þessari vefslóð:

https://www.landsbankinn.is/skraning/hvar-liggja-fjarfestingataekifaeri-a-islandi-siglufjordur/