Framhaldsaðalfundur Félags um Síldarævintýri

Framhaldsaðalfundur Félags um Síldarævintýri verður haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar þriðjudaginn 1. mars kl. 20:00. Þar sem ekki tókst að ljúka stjórnarkjöri á aðalfundi félagsins í janúar er boðað til framhaldsaðalfundar með það að markmiði að skipa félaginu nýja stjórn.
Allir þeir sem hafa áhuga og metnað gagnvart framtíð Síldarævintýrisins eru hvattir til að mæta.