Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga 2014 rennur út kl. 12 á hádegi 10. maí nk. 
Yfirkjörstjórn Fjallabyggðar mun veita framboðslistum og meðmælendalistum vegna þeirra móttöku laugardaginn 10. maí 2014 frá kl. 11:00 til kl. 12:00 í Ráðhúsinu á Siglufirði, 2. hæð.
Framboðslistum skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru sem og skrifleg yfirlýsing frá kjósendum í Fjallabyggð um stuðning við framboðið. Meðmælendur hvers lista skulu vera að lágmarki 40 en að hámarki 80. 
Nafn framboðs skal koma skýrt fram og ósk um úthlutun listabókstafs, auk þess sem hverjum framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýsing um hverjir tveir menn séu umboðsmenn hans. 
Yfirkjörstjórn mun funda um gildi framboða sunnudaginn 11. maí kl. 13:00 í Ráðhúsinu á Siglufirði og er umboðsmönnum framboða heimilt að vera viðstaddir þann fund. 
Á kjördag verður aðsetur yfirkjörstjórnar í Ráðhúsinu á Siglufirði.
Umboðsmönnum framboða er bent á vefinn kosning.is þar sem er að finna ítarlegar upplýsingar um framboð o.fl.

Siglufirði, 6. maí 2014
Yfirkjörstjórn Fjallabyggðar