Fræðslufundir um netnotkun fyrir foreldra og nemendur í 4.-10. bekk

Miðvikudaginn 21. febrúar nk. verða haldnir fræðslufundir, um ábyrga netnotkun, fyrir nemendur í 4. - 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar. Foreldrafundur verður um kvöldið í Tjarnarborg. Fundirnir eru á vegum Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar. Ólína Freysteinsdóttir fjölskyldumeðferðarfræðingur og SAFT fyrirlesari annast fræðsluna í samstarfi við Heimili og skóla, landssamtök foreldra.

Fræðslufundirnir fyrir nemendur eru á skólatíma og fyrir foreldra um kvöldið. (Foreldrar geta einnig nýtt sér fundina á skólatíma ef þeir sjá sér ekki fært að mæta um kvöldið).

  • Fræðsla á Siglufirð: 4.-5. bekkur kl. 9:00-9:30  
  • Fræðsla á Ólafsfirði: 6.-7. bekkur kl. 10:40-11:40; 8.-10. bekkur kl. 12:10-13:10  
  • Fyrirlestur fyrir foreldra í Menningarhúsinu Tjarnarborg kl. 20:00