Foreldravika í Tónskóla Fjallabyggðar

Foreldravika verður í Tónskóla Fjallabyggðar vikuna 21. – 25. september. Í foreldravikunni verður farið yfir markmiðasamninga sem nemandi, kennarar og foreldrar gera sín á milli fyrir skólaárið 2015 – 2016. Öllum foreldrum og forráðamönnum hefur verið sent aðgangsorð að Visku og geta þeir þar kynnt sér betur markmiðasamningana fyrir foreldraviku.

Samningunum, sem gerðir eru í foreldravikunni, er ætlað að auka frumkvæði nemenda og frelsi til þess að hafa áhrif á eigin nám og verkefnaval.
Nemendur geta komið með óskir um verkefni og tónlist sem þeir vilja vinna í um veturinn í samráði við kennara sem sjá svo um að brjóta markmiðin niður og gera nemendum grein fyrir því hvaða aðgerðir þurfa að fylgja til að markmiðunum verði náð.

Markmiðasamningarnir eru gerðir í Visku og er nemendum og forráðamönnum ætlað að fylla inn reitinn um "markmið með orðum nemandans" áður en foreldraviðtalið á sér stað. Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn ræði við börnin sín um óskir og áhuga áður en viðtölin eiga sér stað.

Í foreldravikunni verður hægt að ná tali af skólastjóra og aðstoðarskólastjóra ef þörf er á. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir að hafa samband með netpósti maggi@fjallaskolar.is og eliasth@fjallaskolar.is til að skipuleggja viðtalstíma.