Flugeldasýning á þrettándanum

Þrettándabrennu hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Flugeldasýning Kiwanisklúbbsins Skjaldar í samvinnu við Björgunarsveitina Stráka á Siglufirði verður miðvikudaginn 6. janúar 2021 kl. 18:30 og eru íbúar hvattir til að fylgjast með henni úr fjarlægð, varast hópamyndanir og huga að sóttvörnum.