Fjallabyggð - Kópavogur í Útsvari

Lið Fjallabyggðar í Útsvari
Lið Fjallabyggðar í Útsvari
Fjallabyggð keppir gegn liði Kópavogs í spurningarleiknum Útsvari á RÚV í 16 liða úrslitum næstkomandi föstudag. 
Lið Fjallabyggðar sló út lið Ísafjarðarbæjar með nokkrum yfirburðum í síðustu umferð, Fjallabyggð fékk 70 stig á meðan Ísafjarðarbær fékk 10 stig.
Halldór Þormar Halldórsson, Ásdís Ármannsdóttir og Ámundi Gunnarsson eru í liði Fjallabyggðar.
Eru Siglfirðingar og Ólafsfirðingar eða Fjallabyggðarbúar hvattir til að mæta í sjónvarpssal og styðja við bakið á sínu liði.
Áfram Fjallabyggð!