Mynd: Áætlaður fjöldi erlendra ferðamanna í Fjallabyggð eftir mánuðum 2013, 2010 og 2004
Fyrr á árinu samþykkti bæjarráð að kaupa úttekt á komum ferðamanna til Fjallabyggðar frá árinu 2004 til ársins 2013
af fyrirtækinu Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar ehf. (RRF)
Niðurstöður þessarar úttektar voru kynntar á fundi markaðs- og menningarnefndar í gær.
Helstu niðurstöður eru þessar:
- Áætlað er að innlendum ferðamönnum í Fjallabyggð, þ.e. til Siglufjarðar eða
Ólafsfjarðar, hafi fjölgað úr 44 þúsund árið 2004 í 63 þúsund
árið 2013 (nær öll aukningin frá 2010). Þá er niðurstaðan sú að
erlendum ferðamönnum þangað fjölgaði úr 15 þúsund í 36 þúsund á
sama tímabili.
- Alls er áætlað að um 100 þúsund ferðamenn hafi komið í Fjallabyggð
árið 2013, sem er 68% aukning frá árinu 2004 og 50% aukning frá árinu 2010.
- Áætlað er að Íslendingum sem komu í sveitarfélagið hafi fjölgað um 40% frá 2010 og erlendum ferðamönnum um
71%. Árið 2004 voru 25% af gestum í Fjallabyggð erlendir ferðamenn en 36% árið 2013, þrátt fyrir mikla
fjölgun landsmanna þangað með tilkomu Héðinsfjarðarganga. Allar líkur eru á að innan fárra ára
komi fleiri erlendir ferðamenn en Íslendingar í Fjallabyggð.
- Ferðamenn frá Mið-Evrópu (mest Þjóðverjar, en einnig Svisslendingar, Austurríkismenn o.fl.) eru áberandi stærsti hópur erlenda
gesta í Fjallabyggð. Verulegur meirihluti erlendra gesta kemur á bílaleigubíl (á eigin vegum eða "self drive"), talsvert stór hluti
á eigin bíl (farþegar með Norrænu) en færri í skipulagðri hópferð eða með áætlunarbílum.
Fráviksmörk í þessari úttekt eru nokkur en niðurstöðurnar gefa enga að síður góða mynd af þeirri þróun
sem er í komum ferðamanna til Siglufjarðar og Ólafsfjarðar og hversu mikla þýðingu Héðinsfjarðargöng hafa haft á aukin
ferðamannastraum til Fjallabyggðar..
Skýrslu RFF er hægt að nálgast með því að smella
hér.
Mynd úr skýrslunni sem sýnir áætlaðan fjölda og hlutfall erlendra og innlendra ferðamanna í Fjallabyggð 2004, 2010 og 2013.