Farskóla safnmanna á Siglufirði

Síldarminjasafnið á Siglufirði
Síldarminjasafnið á Siglufirði

Um 150 íslenskir safnmenn og félagar í FÍSOS, Félagi íslenskra safna og safnamanna, halda í dag miðvikudaginn 27. september árlegan Farskóla safnamanna á Siglufirði undir yfirskriftinni "Söfn í stafrænni veröld". Á sama tíma verður aðalfundur félagsins.

Síldarminjasafnið heldur viðburðinn í ár og hefur verið lögð mikil vinna í undirbúning og skipulagningu fyrir þennan stóra viðburð. Farskólastjóri hjá Síldarminjasafninu er Anita Elefsen. Dagskrá dagsins er fjölbreytt og má þar meðal annars nefna fyrirlestra, vinnustofur, skoðunarferðir, og árshátíð svo eitthvað sé nefnt.

Þrír erlendir fyrirlesarar taka þátt í farskólanum í ár. Allan Risbo frá Museumstjenesten, Gunnar Holmstad frá Nordnorsk Fartoyvernsenter og Steven Conn, safnafræðingur og prófessor við Miami Háskólann í Oxford, Ohio. Fyrirlesarar úr röðum safnmanna verða fjölmargir. Skipulagðar vinnustofur verða á dagskrá á fimmtudegi og föstudegi.

Von er á fjölmörgum gestum sem koma með rútu frá Reykjavík í dag og halda heim á föstudag þegar dagskrá lýkur.