Sjávarútvegsskólinn í Fjallabyggð

Nýliðna viku var Sjávarútvegsskólinn haldinn í Fjallabyggð fyrir yngsta árgang nemenda í vinnuskólanum. Alls mættu 15 krakkar á námskeiðið frá Vinnuskóla Fjallabyggðar. Voru þau bæði frá Siglufirði og Ólafsfirði. Kennarar voru þau; María Dís Ólafsdóttir og Magnús Víðisson. Á meðan á Sjávarútvegsskólanum stóð héldu krakkarnir laununum sínum í vinnuskólanum. 

Vikan byrjaði á mjög fræðandi og skemmtilegri heimsókn í Fiskmarkaðinn á Siglufirði. Aðsetur Sjávarútvegsskólans á Siglufirði, þar sem hann var fyrri part námskeiðsins, var á Síldarminjasafninu. Það lífgaði mikið uppá að vera í svo sögulegu umhverfi. Hilmar frá Genís kom til okkar og kynnti starfsemina fyrir krökkunum. 

Skynmat var framkvæmt á tveimur þorskum sem fengnir voru hjá Fiskmarkaðnum. Þorskarnir höfðu báðir verið geymdir á ís í 6 daga og gekk bara vel að meta aldurinn hjá krökkunum.

Framkvæmd voru rodac stimplunar próf og tekin PCA loftsýni. Þau sýndu bakteríu vöxt eftir 2 daga og ekki var lyktin góð.

Seinni part vikunnar hafði skólinn aðsetur í Ólafsfirði. Þar var Sjávarútvegsspilið spilað (sem kennarar Sjávarútvegsskólans bjuggu til), og fleiri fyrirlestrar voru fluttir. Vikan endaði svo á heimsókn í Vélfag ehf þar sem tekið var vel á móti okkur og á pizzu veislu á Höllinni ásamt útskrift.

Samstarfs- og styrktaraðilar í Fjallabyggð voru: Genís hf, Fiskmarkaður Siglufjarðar ehf, Norlandia ehf,  Vélfag ehf,  Fjallabyggð og Síldarminjasafnið.  

Þakkar Sjávarútvegsmiðstöð Háskólans á Akureyri fyrir gott samstarf og ánæjulega viku.