Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík hafa undirritað samkomulag um Eyrarrósina til næstu 4 ára. Með Eyrarrósinni er sjónum beint að að framúrskarandi menningarverkefnum á starfssvæði Byggðastofnunar, þ.e. utan höfuðborgarsvæðisins. Eyrarrósin vekur athygli á og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Verkefnið verður með líku sniði og verið hefur allt frá stofnun þess árið 2005, en þó hefur sú breyting verið gerð að verðlaunaféð er nú hækkað í 2 m.kr. Auk þess fá þeir tveir sem að auki eru tilnefndir til verðlaunanna 500 þ.kr. hver.
Eliza Reid forsetafrú er verndari Eyrarrósarinnar og afhenti hana við hátíðlega athöfn þann 17. febrúar sl. í Verksmiðjunni á Hjalteyri við Eyjafjörð, en Verksmiðjan fékk einmitt verðlaunin í fyrra. Alls bárust 37 umsóknir um viðurkenninguna og fær Eistnaflug tvær milljónir króna í verðlaunafé, auk viðurkenningarinnar. Um fimmtíu rokksveitir munu koma fram á hátíðinni í ár en þar hafa bæði komið fram þekktar íslenskar og erlendar hljómsveitir, auk þess sem stutt er við bakið á ungum og upprennandi sveitum. Aðaláherslan er lögð á þungarokk og aðrar jaðartónlistarstefnur.
Einnig voru tilnefnd til Eyrarrósarinnar í ár Alþýðuhúsið á Siglufirði og Vesturfarasetrið á Hofsósi.
Hér má sjá myndir frá afhendingu Eyrarrósarinnar.