Endurnýjun á ljósabúnaði og uppsetning skiptitjalda í íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar.
Endurnýjun á ljósabúnaði.
Ákveðið hefur verið að ráðast í endurnýjun á lýsingu i í íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar og var áætlaður kostnaður við verkið kr. 8.440.714,-
Leitað var tilboða í verkið og voru þau opnuð mánudaginn 14. janúar sl. í Ráðhúsi Fjallabyggðar.
Eftirfarandi tilboð bárust:
Ingvi Óskarsson ehf 7.383.261,-
Raffó ehf 7.892.770,-
Skiptiveggir í íþróttahús Fjallabyggðar.
Einnig var ákveðið að fara í uppsetningu skiptitjalda fyrir íþróttasali íþróttamiðstöðva í Fjallabyggð og var leitað tilboða vegna þessa.
Eftirfarandi tilboð bárust:
Á. Óskarsson ehf kr. 9.781.110
Altis ehf kr. 9.414.121
Var tilboði Altis ehf tekið í verkið.
Sett verða upp tvö skiptitjöld í báða íþróttasali Fjallabyggðar sem bæta æfingaaðstöðu til muna enda nýtast nú íþróttasalir fleiri aðilum á sama tíma. Bæjarráð samþykkti ofangreint á 588. fundi sínum þann 15. janúar sl.