Mynd: UÍF
Val á íþróttamanni ársins í Fjallabyggð fór fram föstudaginn 29. desember sl., og var það skíðagöngukonan Elsa Guðrún Jónsdóttir frá Skíðafélagi Ólafsfjarðar sem var valin íþróttamaður ársins og skíðakona ársins í Fjallabyggð. Er það annað árið í röð sem hún hlýtur þann titil.
Elsa Guðrún stóð sig vel á göngubrautinni á árinu en hápunkturinn hennar var án efa sigur í forkeppni HM, sem tryggði henni þáttökurétt í öllum keppnisgreinum á HM í Finnlandi á næsta ári. Með árangri sínum á árinu tryggði Elsa sér einnig þáttökurétt á Vetrarólympíuleikunum sem fram fara í Suður Kóreu í febrúar nk.
Athöfnin fór fram á Kaffi Rauðku og eru það Kiwanisklúbburinn Skjöldur í Fjallabyggð og Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar sem standa saman að valinu.
Einnig voru valin efnilegasta og besta íþróttafólk hverrar greinar en 39 voru tilnefndir í ár. Hvert aðildarfélag tilnefndi allt að þrjá iðkendur í kjörinu á íþróttamanni hverrar greinar (19 ára og eldri) en þeir sem urðu fyrir valinu voru eftirtaldir:
- Blakmaður ársins: Þórarinn Hannesson frá BF
- Bocciamaður ársins: Hrafnhildur Sverrisdóttir frá Snerpu
- Knattspyrnumaður ársins: Andri Freyr Sveinsson frá KF
- Kraftlyftingarmaður ársins: Hilmar Símonarson frá KFÓ
- Kylfingur ársins: Sigurbjörn Þorgeirsson frá GKF
- Skíðamaður ársins: Elsa Guðrún Jónsdóttir frá SÓ
Aðildarfélögin tilnefndu líka unga og efnilega iðkendur í báðum kynjum og fengu eftirtaldir viðurkenningu fyrir árangur sinn í eftirfarandi íþróttagreinum:
- Badminton: Hörður Ingi Kristjánsson og Anna Brynja Agnarsdóttir
- Blak: Eduard Constantin Bors og Oddný Halla Haraldsdóttir
- Hestamennska: Hörður Ingi Kristjánsson og Marlis Jóna Karlsdóttir
- Knattspyrna: Vitor Vieira Thomas og Anna Brynja Agnarsdóttir
- Golf: Þorgeir Örn Sigurbjörnsson og Sara Sigurbjörnsdóttir
- Skíði: Alexander Smári Þorvaldsson og Helga Dís Magnúsdóttir
Ármann Þórðarson var heiðraður fyrir óeigingjarnt starf í þágu íþróttamála í Fjallabyggð en Ármann hefur tekið þátt í og komið að íþróttamálum í Ólafsfirði í um 7 áratugi og var m.a. einn af stofnendum Golfklúbbs Ólafsfjarðar árið 1968. Síðan þá hefur Ármann unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir klúbbinn.
Kara Gautadóttir, úr Ólafsfirði, var einnig heiðruð á hátíðinni fyrir frábæran íþróttaárangur á árinu en Kara keppir fyrir Kraftlyftingarfélag Akureyrar. Hún var m.a. í 2. sæti á Norðurlandamótinu og í 3. sæti á Evrópumóti unglinga í sínum þyngdarflokki.
Fréttatexti og myndir fengnar af vef UÍF