Dagur leikskólans 6. febrúar

Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í 11. skipti þriðjudaginn 6. febrúar 2018.

Leikskólakennarar, stjórnendur leikskólans og annað starfsfólk sérstaklega hvatt til að halda upp á daginn.

Notum tækifærið og vekjum athygli á daglegu starfi leikskólanna. Myllumerkið er #dagurleikskolans2018.

Sjötti febrúar er merkisdagur í sögu leikskólans hér á landi því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Félagar í Félagi leikskólakennara eru um 2.200 og tæplega 500 manns eru í Félagi stjórnenda leikskóla.