Dagur leikskólans

Leikskólinn Leikskálar
Leikskólinn Leikskálar

Í dag 6. febrúar var dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum Fjallabyggðar en dagurinn er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Tilgangurinn með deginum er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.

Í tilefni dagsins fóru börnin á leikskólanum Leikskálum á Siglufirði í gönguferð um bæinn og sýndu sig og sáu aðra. Börnin komu meðal annars við fyrir utan ráðhús Fjallabyggðar og sungu nokkur lög af sinni alkunnu snilld. 

Þökkum við þeim kærlega fyrir komuna. Heimsókn barnanna lýsir upp daginn og gleður hvers manns hjarta. 

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. 

Leikskólabörn   Leikskólabörn

Leikskólabörn   Leikskólabörn