Dagskrá um Sjómannadagshelgina

Dagskrá um sjómannadagshelgina í Ólafsfirði hefur nú litið dagsins ljós og má segja að hún sé hin glæsilegasta.  Það er Sjómannadagsráð Sjómannafélags Ólafsfjarðar sem hefur haft veg og vanda að gerð dagskrárinnar sem höfðar til fólks á öllum aldri. Eru íbúar Fjallabyggðar hvattir til þátttöku í hátíðarhöldunum.
 
Dagskrá Sjómannadagshelgarinnar í Ólafsfirði