Dagskrá Síldarævintýris

Mynd: Sigurjón Jóhannsson
Mynd: Sigurjón Jóhannsson

Nú er unnið hörðum höndum að því að setja saman dagskrá fyrir komandi Síldarævintýri. Í ár hefst hátíðin laugardaginn 23. júlí með Trilludögum, sem verða 23. og 24. júli. Síðan taka við Síldardagar með gönguviku og standa þeir fram að ævintýrinu sjálfu sem svo lýkur sunnudaginn 31. júlí.
Líkt og áður er óskað eftir því að skemmtistaðir, veitingastaðir, félagasamtök, íþróttafélög, gallerí og allir aðrir sem áhuga hafa á að koma viðburðum sínum á framfæri í dagskrá hátíðarinnar sendi allar nauðsynlegar upplýsingar á netfangið: siglosild@gmail.com fyrir 30. júní nk.

Hjálpumst að við að gera dagskrá Síldarævintýris 2016 sem glæsilegasta!