Búið að opna sundlaugina og heitu pottana í Ólafsfirði

Búið er að opna sundlaugina og heitu pottana í Ólafsfirði og verður opið skv. áætlun til kl. 19:00 í dag.
Í hádeginu var einungis hægt að opna ræktina í Ólafsfirði en nú er búið að opna bæði sundlaug og heitu pottana. Erfiðlega gekk að taka dúk af sundlauginni vegna vinds og snjóa og sömuleiðis þurfti að ná upp hita í heitu pottunum.