Frá og með 19. febrúar 2021 breytist opnunartími afgreiðslu bæjarskrifstofu Fjallabyggðar.
Mánudaga – fimmtudaga verður afgreiðsla opin frá kl. 9:30 – 15.00 og símsvörun frá kl. 8:00 – 15:00
Á föstudögum verður afgreiðslan opin frá kl. 8:30 – 14:00 og símsvörun frá kl. 8:00 – 14:00
Símanúmer skiptiborðs: 464-9100
Íbúar eru eindregið hvattir til þess að kynna sér og nota rafræna þjónustu bæjarfélagsins eftir því sem hægt er.
Á heimasíðu Fjallabyggðar má nálgast helstu upplýsingar um þjónustu, gjaldskrár, umsóknir ásamt netföngum starfsmanna.