Kátur hópur nemenda úr Grunnskóla Fjallabyggðar og úr leikskólanum Leikskálum fjölmennti í kirkjutröppurnar á Siglufirði í hádeginu í dag og söng til sólarinnar.
Fyrsti sólardagur var í Ólafsfirði 25. janúar og á Siglufirði í gær sunnudaginn 28. janúar. Sólin hverfur úr Fjallabtggð um miðjum nóvember og sést ekki í rúma tvo mánuði. Heimamönnum finnst vert að halda upp á sólardaginn með því m.a. að gæða sér á "sólarpönnukökum".
Meðfylgjandi lag og texta, sem börnin hafa verið að æfa síðustu daga ásamt nokkrum öðrum vel völdum sólarlögum, sungu þau fullum hálsi. Sólin lét af sjálfsögðu sjá sig og skein björt og fögur á fjallstoppana yfir Siglufirði. Þökkum við krökkunum frábæran söng.
Fyrra erindið er eftir Ingólf frá Prestbakka, seinna erindið setti Guðný Róbertsdóttir saman fyrir Ólafsfirðingana í skólanum. Lagið gerði Þórarinn Hannesson.
Sól er yfir Siglufirði
sumarheið og skær,
blálygn sundin, bjartur spegill
bliki á þau slær.
Fjöllin eins og varnarvirki
vaka nær og fjær.
Fjöllin eins og varnarvirki
vaka nær og fjær.
(texti Ingólfur frá Prestbakka)
Sól er yfir Ólafsfirði
öllum gleði ljær
Blálygnt vatnið, bjartur spegill
bliki á það slær.
Inn með firði fjöllin vaka
fannhvít nær og fjær.
Inn með firði fjöllin vaka
fannhvít nær og fjær.