Bókasafnsdagurinn - Lestur er bestur

Bókasafnsdagurinn 2015 - Lestur er bestur - fyrir alla verður haldinn þriðjudaginn 8.sept næstkomandi.

Markmið dagsins er fyrst og fremst að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu og minna á í leiðinni að það er gaman að koma á bókasafnið. Í tilefni dagsins og að Sumarlestrinum er formlega lokið ætla starfsmenn bókasafnsins að brjóta upp daginn með skemmtilegheitum og jafnvel henda í eitthvað gott að maula. Eru foreldrar hvattir til að koma með börnin á bókasafnið og leyfa þeim að kynnast starfsseminni.