Blysför, brenna og diskó

Árleg þrettándagleði í Fjallabyggð verður á morgun, 6. janúar kl. 18:00. Dagskráin hefst með blysför frá Ráðhústorginu á Siglufirði. Eru allir hvattir til að mæta i grímubúningum. Í lok brennu verður flugeldasýning. Að því loknum verður diskó í Allanum fyrir börnin. Það er Kiwanisklúbburinn Skjöldur í samvinnu við 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar sem skipuleggur viðburðinn.

Boðið verður upp á rútuferð frá Ólafsfirði kl. 17:30 og til baka kl. 19:30. Rútan fer frá Ráðhústorginu á Siglufirði.

Ágætis veðurspá er fyrir daginn, austan 8 - 9 m/sek og örlítil úrkoma.