Blak spilað í Fjallabyggð um helgina

Mynd: Blakfélag Fjallabyggðar
Mynd: Blakfélag Fjallabyggðar

Alls voru 136 blakleikir spilaðir í Fjallabyggð um helgina þegar Sigló Hótel - Benecta mótið 2017 var haldið.

Samtals spiluðu 53 lið 136 blakleiki en mótinu lauk síðdegis í gær laugardag með verðlaunaafhendingu í Bátahúsinu. Um kvöldið fór svo fram lokahóf á Rauðku. 

Alls var spilaði í sex kvennadeildum og tveimur karladeildum. Blakfélag Fjallabyggðar var með sex lið í mótinu, og liðið BF-1 náði 3. sæti í 1. deild kvenna, BF-2 náði 2. sæti í 3. deild kvenna og BF-kjúllar sigruðu í 6. deild kvenna.

Í fyrstu deild karla sigraði lið KA-Ö, í 2. deild karla sigraði lið Leifurs. Í 1. deild kvenna sigraði Völsungur og í 2. deild kvenna sigraði Völsungur B. Öll úrslit og lokastöðu má sjá á vef blak.is.