Björn Vilhelm sigraði Stærðfræðikeppni FNV, MTR og 9. bekkjar

Þátttakendur Grunnskóla Fjallabyggðar; Björn, Þorgeir og Sara.
Þátttakendur Grunnskóla Fjallabyggðar; Björn, Þorgeir og Sara.
Föstudaginn 2. maí fór fram stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Menntaskólans á Tröllaskaga og 9. bekkjar, 
en keppnin hefur nú verið haldin árlega í 17 ár. Í fyrsta sæti var Björn Vilhelm Ólafsson, Grunnskóla Fjallabyggðar, í öðru sæti var Páll Halldórsson, Höfðaskóla og í þriðja sæti var Guðjón Alex Flosason, Grunnskólanum á Hólmavík. 

Undankeppni stærðfræðikeppninnar fór fram í mars og tóku 170 nemendur frá Norðurlandi vestra, Fjallabyggð og Dalvíkurskóla þátt í henni. Að þessu sinni komust 15 nemendur í úrslitakeppnina.
Þrír nemendur frá Grunnskóla Fjallabyggðar, þau  Björn Vilhelm Ólafsson, Sara María Gunnarsdóttir og Þorgeir Örn Sigurbjörnsson komust í úrslit. 

Stærðfræðikeppnin er samstarfsverkefni FNV, grunnskóla, stofnana og fyrirtækja á Norðurlandi vestra auk þess sem fyrirtæki utan kjördæmisins koma að verkefninu. Kennarar í stærðfræði við FNV báru hitann og þungann af samningu og yfirferð keppnisgagna, en grunnskólarnir sáu um fyrirlögn dæmanna í undankeppninni. 

Sigurvegarinn fékk m.a. í verðlaun Casio reiknivél frá Heimilstækjum, Canon prentara frá Kaupfélagi Skagafjarðar, 10.000 kr. í peningum, gjafabréf frá Ökuskóla Skagafjarðar. Appel TV frá Símanum og verðlaunagrip frá KLM verðlaunagripum.

Heimild: FNV.is


Björn Vilhelm hlaðinn verðlaunum.