Bergþór Morthens með sýningu í Alþýðuhúsinu

Eitt af verkum Bergþórs
Eitt af verkum Bergþórs

Næstkomandi föstudag, 11. sept., opnar sýning í Kompunni, Alþýðuhúsinu Siglufirði. Það er Bergþór Morthens sem verður með sýningu og er yfirskriftin "Við aftökustaðinn".

Bergþór Morthens er fæddur árið 1979. Hann stundaði nám í Myndlistaskólanum á Akureyri á árunum 2001-2004 og mastersnám við Valand listaakademíuna í Gautaborg 2013-2015. Bergþór hefur unnið ötullega að list sinni og haldið bæði einka- og samsýningar, jafnt hér á landi sem erlendis. Verk Bergþórs ögra viðmiðum portrett-hefðarinnar og daðra við hið gróteska. Viðfangsefnin eru í mörgum tilfellum, stjórnmálamenn og fólk í valdastöðum, máluð á „hefðbundinn“ máta en í stað þess að upphefja viðfangsefnið er samhenginu breytt með miðlun listamannsins. Sýningin Við aftökustaðinn vísar til verks eftir Kjarval af einum alræmdasta aftökustað landsins, Drekkingarhyl í Öxará. Verkin eru fullunnin í ákveðnum stíl en svo kemur til sögunnar annar stíll, meira abstrakt og expressjónískur. Hann hylur eða eyðileggur upphaflega verkið og skírskotar til Chromophobiu (ótti við liti), þess að grýta tertu í andlit einhvers í pólitískum mótmælum en vísar einnig til athafnamálverksins (e. action painting).

Heitt á könnunni og allir velkomnir. Nánari upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 8565091.  Sýningin verður opin til 4. október. 

Þess má geta að Bergþór var Bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið 2010.  

Menningarráð Eyþings, Fjallabyggð og Fiskbúð Siglufjarðar styðja við menningarstarfið í Alþýðuhúsinu.