Bergþór Morthens - Mögulegur ómöguleiki í Ráðhússalnum

Mögulegur ómöguleiki

Verkin á sýningunni eru tilraunir með takmörk – möguleika og ómöguleika málverksins sem miðils. Myndflöturinn verður nokkurs konar átakasvæði þar sem heildin er rofin. Ferli málverksins tekur yfir og efnið tekur stjórn. Formið víkur fyrir formleysi og verður að nýrri heild með annars konar frásögn. Frásögn sem fjallar ekki síður um, eða vísar til, samhengis utan myndflatarins.

Bergþór Morthens (f. 1979) lauk námi við Myndlistaskólann á Akureyri 2004 og MA námi í myndlist við Valand háskólann í Gautaborg 2015. Hann hefur haldið einkasýningar á Íslandi, í Rúmeníu og Svíþjóð og tekið þátt í samsýningum á Íslandi, Grikklandi, í Svíþjóð, Frakklandi og Danmörku.

Sýningin var hluti af INTOO 2024 Listahátíð Alþýðuhússins og Listahátíð í Reykjavíkur sem haldin var dagana 7. - 9. júní sl.

Sýningin verður opin áfram í Ráðhússalnum á Siglufirði föstudagin 21. júní og laugardaginn 22. júní frá kl. 15:00-17:00