Bæjarstjórnarfundi frestað til föstudagsins 15. janúar kl. 17:00

Vakin er athygli á því að næsti bæjarstjórnarfundur verður föstudaginn 15. janúar kl. 17:00. 

Samkvæmt venjubundnum fundartíma bæjarstjórnar, sem er annar miðvikudagur í mánuði, hefði næsti fundur átt að vera þann 13. janúar nk. Ákveðið hefur verið að fresta honum til föstudagsins 15. janúar kl. 17:00. Fundurinn verður í Ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði.

Þetta tilkynnist hér með.