Sturlaugur Kristjánsson tónlistarmaður var í gær fimmtudaginn 25. janúar útnefndur Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2018. Við athöfnina sem fram fór í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði voru einnig afhentir menningar- og rekstrarstyrkir til einstaklinga og félagasamtaka í Fjallabyggð fyrir árið 2018.
Ásgeir Logi Ásgeirsson formaður markaðs- og menningarnefndar og Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi afhentu styrkina og það var Ásgeir Logi sem afhenti Sturlaugi viðurkenninguna. Nemendur úr Tónskólanum á Tröllaskaga sáu um tónlistarflutning.
Sturlaugur Kristjánsson Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2018
Sturlaugur eða Stúlli eins og hann er alltaf kallaður, er borinn og barnfæddur Siglfirðingur fæddur árið 1953 og hefur allan sinn tónlistarferil unnið óeigingjarnt starf með þátttöku sinni í menningar- og tónlistarlífi bæjarins og hófst sá ferill fyrir fimmtíu árum þegar ný félagsmiðstöð var opnuð á Siglufirði fyrir unglinga. Sturlaugur hefur sýnt og sannað að hann er meðal okkar fremstu og hæfileikaríkustu tónlistarmanna og hefur allt það til að bera sem prýtt getur bæjarlistamann. Hann er framúrskarandi listamaður sem fer alla leið og í hugum margra er Stúlli listamaður sem hefur haldið uppi merkjum sköpunargleðinnar í hálfa öld.
Sturlaugur hefur unnið sem kórstjórnandi fjölda kóra í byggðarlaginu, stjórnað sönghópum og spilað með Lúðrasveit Siglufjarðar. Hann er einn af stofnendum Harmonikkusveitar Siglufjarðar, hefur sett upp ótal söngskemmtanir og leikþætti, verið burðarás í sýningum Síldarminjasafnsins til margra ára og hjá leikfélaginu. Sturlaugur var meðal annars einn af stofnendum hljómsveitarinnar Miðaldamenn sem stofnuð var árið 1970 ásamt fjölda annarra hljómsveita sem hann hefur stofnað og spilað með gegnum árin.
Óhætt er að fullyrða að þar sem einhver skemmtun eða viðburður hefur verið haldinn á Siglufirði og í Ólafsfirði hafi Sturlaugur mætt og annast bæði sem hljóðfæraleikari og söngvari.
Óskum við Sturlaugi innilega til hamingju með nafnbótina.
Afhentir menningar- og rekstrarstyrkir til einstaklinga og félagasamtaka fyrir árið 2018. Styrki sem með einum eða öðrum hætti munu styðja við bakið á menningarlífi Fjallabyggðar en alls bárust tuttugu og tvær umsóknir og voru tuttugu og ein umsókn samþykkt. Nema úthlutaðir styrkir vegna ársins 2018 samtals 5.950.000 kr.
Eftirtaldir einstaklingar og félagasamtök hljóta styrk að þessu sinni.
Vinnustofa Abbýjar. Arnfinna Björnsdóttir – 50.000 kr.
Hlýtur styrk vegna reksturs vinnustofu.
Berjadagar Tónlistarhátíð – 650.000 kr.
Hlýtur styrk vegna árlegrar tónlistarhátíðar.
Félag eldri borgara á Siglufirði - 100.000 kr.
Hlýtur styrk vegna reksturs félagsins.
Félag eldri borgara í Ólafsfirði - 100.000 kr.
Hlýtur styrk vegna reksturs félagsins.
Félag um ljóðasetur - 350.000 kr.
Hlýtur styrk vegna reksturs.
Fjallasalir ses – uppbyggingarstyrkur - 200.000 kr.
Hljóta styrk til uppbyggingar efri hæðar Pálshúss.
Hljóðsmárinn ehf – 100.000 kr.
Hlýtur styrk fyrir útvarpsstöðina Trölla.
Hljóðsmárinn ehf – 100.000 kr.
Hlýtur styrk vegna útvarpssendinga MTR, TAT og GF.
Kirkjukór Ólafsfjarðarkirkju - 100.000 kr.
Hlýtur rekstrarstyrk vegna starfsemi kórsins.
Kór eldri borgara - 100.000 kr.
Hlýtur rekstrarstyrk vegna starfsemi kórsins.
Kvenfélagið Æskan - 100.000 kr.
Hlýtur styrk vegna minningarsteins í tilefni 100 ára afmæli félagsins.
Kvæðamannafélagið Ríma – 100.000 kr.
Hlýtur rekstrarstyrk vegna starfsemi félagsins.
Leikfélag Fjallabyggðar – 250.000 kr.
Hlýtur styrk vegna uppsetningar á leikriti á leikárinu 2017.
Listhúsið Ólafsfirði – 450.000 kr.
Hlýtur styrk vegna þriggja hátíða á árinu 2018.
Ljósmyndaklúbbur Fjallabyggðar – 50.000 kr.
Hlýtur styrk vegna sýninga og námskeiða.
Sjómannafélag Ólafsfjarðar – 1.000.000 kr.
Hlýtur styrk vegna dagskrá Sjómannadagshátíðar í Fjallabyggð.
Systrafélag Siglufjarðarkirkju - 200.000 kr.
Hlýtur styrk vegna góðgerðarstarfs.
Ungmennafélagið Glói – 200.000 kr.
Hlýtur styrk vegna ljóðahátíðarinnar Haustglæður.
Þjóðlagahátíðin Siglufirði – 850.000 kr.
Hlýtur styrk vegna þjóðlagahátíðar 2018.
Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar - 800.000 kr.
Hlýtur rekstarstyrk vegna starfsemi safnsins.
Þór félag safnara – 100.000 kr.
Hlýtur styrk vegna sýningar á 25 ára afmælisári félagsins.
Þeir sem hlutu menningar- og rekstrarstyrki 2018
Sturlaugur Kristjánsson bæjarlistamaður
Hljómsveitin Ronja og ræningjarnir