Bæjarlistamaður Fjallabyggðar og afhending menningarstyrkja

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2018, Sturlaugur Kristjánsson, verður útnefndur á morgun fimmtudaginn 25. janúar.  Athöfnin fer fram í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði og hefst hún kl. 18:00. Við sama tilefni verða afhentir menningarstyrkir Fjallabyggðar fyrir árið 2018.

Allir velkomnir.
Markaðs– og menningarnefnd.