Atvinna - Starfsmaður félagsmiðstöðvar í Ólafsfirði

Fjallabyggð auglýsir laust til umsóknar starf við Félagsmiðstöðina Tunglið, félagsmiðstöð unglinga í Ólafsfirði.

Um er að ræða gefandi vinnu með börnum og unglingum, vinnutími er að mestu leiti á kvöldin.

Launakjör skv. samningum Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag

Allar frekari upplýsingar veitir íþrótta- og tómstundafulltrúi á bæjarskrifstofunni í Ólafsfirði eða í síma464-9200

Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofur Fjallabyggðar eigi síðar en 17. ágúst n.k. og fást umsóknareyðublöð á bæjarskrifstofunni og á www.fjallabyggd.is

 

Íþrótta- og tómstundafulltrúi