Áríðandi ! Lokað verður fyrir kalt vatn á Siglufirði 19. október á milli kl. 00:00-06:00

Áríðandi tilkynning !

Vegna vinnu við dreifikerfi verður lokað fyrir kalt vatn á Siglufirði aðfararnótt laugardagsins 19. október. Áætlað er að vinna hefjist klukkan 00:00 og verði lokið kl. 06:00.  

Varast ber að nota heita vatnið á meðan á lokun stendur þar sem vatnið er óblandað og kann að vera mjög heitt.

Vatnsveita Fjallabyggðar