09.01.2019
Fjallabyggð veitir foreldrum/forráðamönnum barna á aldrinum 4-18 ára með lögheimili í Fjallabyggð, frístundastyrk vegna þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
Á næstu dögum mun Fjallabyggð senda út frístundaávísanir til foreldra/forráðamanna allra barna í Fjallabyggð á aldrinum 4 - 18 ára.
Frá og með 1. janúar 2019 er styrkurinn kr. 32.500 á barn á ári.
Lesa meira
07.01.2019
Þann 2. janúar sl. breyttist opnunartími íþróttamiðstöðva um helgar. Um er að ræða tímabundna breytingu til reynslu fram að sumaropnun. Í tengslum við fjárhagsáætlun fyrir árið 2019 ákvað bæjarstjórn að gera þessa breytingu og koma þannig til móts við óskir íbúa um aukna þjónustu
Lesa meira
04.01.2019
Undanfarin ár hefur Grunnskóli Fjallabyggðar boðið stúlkum á miðstigi upp á stúlknanámskeið sem er sjálfstyrkingarnámskeið fyrir stúlkur en ekkert sambærilegt efni hefur verið til fyrir drengi á þessum aldri. Fræðslu- og frístundanefnd lagði til við bæjarstjórn að í fjárhagsáætlun 2019 yrði gert ráð fyrir að kaupa fræðslu í þessum anda fyrir drengi á miðstigi.
Næstkomandi mánudag, 7. janúar mun Bjarni Fritzson koma í Grunnskóla Fjallabyggðar og halda námskeið/fræðslu fyrir drengi í 4.-5. bekk og 6.-8.bekk. Um er að ræða 2 klst fyrir hvorn hóp.
Lesa meira