Áminning til vegfarenda

Vistgötur á Siglufirði
Vistgötur á Siglufirði
Tæknideild Fjallabyggðar vill minna vegfarendur á að eftirfarandi götur á Siglufirði eru vistgötur:
Aðalgata frá Túngötu að Grundargötu sem er jafnframt einstefnugata til austurs.
Lækjargata frá Gránugötu að Aðalgötu.
Bátadokk, framhjá Hannes Boy Café og Kaffi Rauðku sem er jafnframt einstefnugata til austurs.

Mikill misbrestur er á því að ökumenn virði einstefnu og þau lög sem gilda um vistgötur og skal því hér minnt á helstu atriði:
Í umferðarlögunum segir um vistgötur að þar er heimilt að dvelja og vera að leik. Þar ber að aka mjög hægt, að jafnaði eigi hraðar en 15 km/klst. Ef gangandi vegfarandi er nærri má eigi aka hraðar en á venjulegum gönguhraða. Ökumaður skal sýna gangandi vegfaranda sérstaka tillitssemi og víkja fyrir honum. Gangandi vegfarandi má eigi hindra för ökutækis að óþörfu.

Tæknideild Fjallabyggðar

Hér er hægt að nálgast pdf-útgáfu af kortinu. (1.38 MB)