Almenningssamgöngur

Líkt og kom fram hér á heimsíðunni í byrjun júní getur almenningur nýtt sér allar þær ferðir hópferðabíls sem í boði eru á milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar nú í sumar gegn vægu gjaldi. Stór hluti ferðanna eru í tengslum við íþrótta- og knattspyrnuskóla KF. Gerð hefur verið smávægileg breyting á tímatöflunni sem felst í því að ferðir sem voru að morgni fimmtudags, kl. 09:35 frá Siglufirði og kl. 10:00 frá Ólafsfirði, verða nú framvegis að morgni föstudags.

Verð fyrir staka ferð er kr. 400 en hægt er að kaupa 10, 20 eða 30 miða á upplýsingamiðstöðvum Fjallabyggðar.

Uppfærð aksturstafla á pdf. (92 kb)