Aðventu- og jóladagskrá í Fjallabyggð

Í dag verður dreift í hús í Fjallabyggð viðburðadagatali þar sem fram koma upplýsingar um helstu viðburði í bæjarfélaginu á komandi aðventu. Kallað hefur verið eftir upplýsingum um viðburði með auglýsingum í Tunnunni og eins á heimasíðu Fjallabyggðar. Ekki er víst að upplýsingar sem fram koma séu tæmandi en ljóst er að það verður nóg um að vera í Fjallabyggð á komandi vikum. Viðburðadagatalinu verður dreift með Tunnunni. Hægt er að nálgast pdf-skjal með því að smella á myndina.

Aðventu- og jóladagskrá í Fjallabyggð