Aðalheiður S. Eysteinsdóttir í Kompunni - Sýningaropnun 5. desember kl. 17:00

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir

Á morgun fimmtudaginn 5. desember opnar Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýninguna Seiðandi dans í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Opnunin hefst klukkan 17.00 og er opið til kl. 22.00 það kvöld. Á sama tíma er opið í anddyri Alþýðuhússins þar sem Aðalheiður er með ýmis smáverk til sölu sem ratað gætu í jólapakka.

Sýningin og anddyrið eru opin daglega kl. 14.00 - 17.00. til 20. desember.

Að vanda eru allir hjartanlega velkomnir að njóta lista og ljúfra stunda.

Uppbyggingasjóður/Eyþing, Norðurorka, Fjallabyggð, Menningarsjóður Siglufjarðar og Aðalbakarí styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Seiðandi dans.

Manneskjan hefur frá örófi alda tjáð og túlkað tilveru sína með dansi eða ljóðrænni hreyfingu, rétt eins og vindurinn sem blæs skýjum frá einum stað á annan eða öldur sem ber með ofsa að ströndu.
Hugurinn ber ómótaðar hugsanir frá hugarfylgsnum að ljósi og færir andann upp og ofar. Vegferð manneskju um lífsins lendur teiknar spor á hvíta jörð og markar jarðvist einnar sálar í mannhafi.
Frá upphafi til enda, frá upphafi til þess óendanlega, eilíf hringrás í hringiðu.

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir er fædd og uppalin á Siglufirði en fluttist til Akureyrar og útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri 1993. Hún tók virkan þátt í uppbyggingu listagilsins svokallaða á Akureyri, starfrækti þar gallerí Kompuna og vann þar að eigin listsköpun til ársins 2004. Þá fluttist hún í Freyjulund norðan Akureyrar og var ein af stofnendum Verksmiðjunnar á Hjalteyri. Árið 2012 flutti hún starfsemi sína í Alþýðuhúsið á Siglufirði og býr nú og starfar þar. Árið 2012 flutti hún starfsemi sína í Alþýðuhúsið á Siglufirði og býr nú og starfar þar.
Aðalheiður hefur sett upp um 170 einkasýningar í 14 löndum og tekið þátt í fjölda samsýninga og listrænum verkefnum. Hún var bæjarlistamaður Akureyrar árið 2000 og hefur síðan hlotið ýmsar viðurkenningar og starfslaun, meðal annars Menningarverðlaun DV. fyrir árið 2015. Aðalheiður hefur kennt myndlist á öllum kennslustigum í gegnum tíðina og skapað grundvöll fyrr aðra listamenn til að láta ljós sitt skýna. Aðalheiður á verk bæði á opinberum stöðum og stofnunum hérlendis og í einkasöfnum hérlendis og erlendis. Síðasta stóra sýning hennar var við enduropnun Listasafnsins á Akureyri haustið 2018.

Sýningin í Kompunni er tileinkuð minningu um góðan vin Aðalheiðar sem gaf svo mikið til skapandi hugsunar.

Með sýningunni verður spiluð tónlist listamannsins Framfara.

Til Öllu frá Þorsteini þegar hún varð fertug á aðfangadag jónsmessu 2003.

Seiður

Þetta blóm sem þú gafst mér er bikar, og í bikarinn þarf ekki vín.
Ef ég horfi á hann hjartað slær kvikar. Ef ég hugsa um hann förlast mér sýn.
Hvaða seiður í svip þér og fasi kann að sefja sem þytur um vor?
Ef þú gengur í döggvotu grasi feta glitrandi blóm í þín spor.

Ertu sköpuð af guðum í skýjum, komstu í skóga svo laufguðust tré?
Komstu að ofan af himninum hlýjum og með hárið þitt bjart sem ég sé?
Hvernig augun þín tvö líta á mig, hvílík örlög sem baka þín svör.
Ég er sæll ef þér þóknast að sjá mig, og mig svimar við orð þér á vör.

Þýðing Þorsteins Gylfasonar á Malía, ljóði Pocco Emanuele Pagliara.

Fréttin er aðsend.