112 dagurinn

Viðbragðsaðilar í Fjallabyggð halda upp á 112 daginn, í dag, fimmtudaginn 11. febrúar. Í tilefni dagsins verður sýning á tækjum og tólum sjúkraflutninga, björgunarsveita og Slökkviðliðs Fjallabyggðar, sjúkraflutninga og björgunarsveita milli kl. 16:00 - 18:00. Í Ólafsfirði við slökkvistöðina og Sandhól. Á Siglufirði við slökkvistöðina.
Heitt á könnunni og allir velkomnir