Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

145. fundur 30. október 2024 kl. 16:00 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Viktor Freyr Elísson formaður
  • Sandra Finnsdóttir aðalm.
  • Katrín Freysdóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri
Bryndís Þorsteinsdóttir og Jakob Örn Kárason boðuðu forföll og varamaður þeirra einnig.

1.Starfsaðstæður og skipulag í Leikskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 2410098Vakta málsnúmer

Til umræðu voru leikskólamál og þær leiðir sem mörg sveitarfélög eru að fara með breytingu á starfsaðstæðum og skipulagi í leikskólum svo sem með gjaldfrjálsum 6 tíma leikskóla og skráningardögum. Einnig voru húsnæðismál og starfsaðstæður til umræðu.
Vísað til bæjarráðs
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til við bæjarráð að skipaður verði vinnuhópur sem hafi það að markmiði að skoða kosti og galla breytinga á starfaðstæðum í Leikskóla Fjallabyggðar. Horft verði til þess að mögulegar breytingar taki gildi frá og með næsta skólaári.

Rætt um húsnæðismál Leikhóla Ólafsfirði. Fjöldi barna á deildum er kominn að þolmörkum. Nauðsynlegt er að ráðast í aðgerðir til lausna. Fræðslu- og frístundanefnd óskar eftir hugmyndum frá starfsfólki Leikhóla.

Fundi slitið - kl. 18:00.