Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 90. fundar - 5. október 2020
Málsnúmer 2010002F
Vakta málsnúmer
-
Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 90
Undir þessum lið sátu Olga Gísladóttir skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar og Fanney Jónsdóttir fulltrúi starfsmanna. Starfsáætlun Leikskóla Fjallabyggðar lögð fram til kynningar.
Bókun fundar
Afgreiðsla 90. fundar fræðslu- og frístundanefndar staðfest á 192. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
-
Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 90
Deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála kynnti starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Neon fyrir fundarmönnum. Starfið hófst 16. september síðastliðinn. Félagsmiðstöðin er opin tvö kvöld í viku, miðvikudaga og föstudaga í húsnæði að Lækjargötu 8 Siglufirði. Umsjónarmaður Neons er Karen Sif Róbertsdóttir.
Bókun fundar
Afgreiðsla 90. fundar fræðslu- og frístundanefndar staðfest á 192. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
-
Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 90
Stofnaður hefur verið samráðsvettvangur stjórnenda skólastofnana í Fjallabyggð. Þar eiga sæti stjórnendur Menntaskólans á Tröllaskaga, Grunnskóla Fjallabyggðar, Leikskóla Fjallabyggðar og Tónlistarskólans á Tröllaskaga ásamt bæjarstjóra og deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála. Áætlað er að fundir verði reglulegir 4-5 sinnum yfir skólaárið. Fundargerðir lagðar fram til kynningar. Fræðslu- og frístundanefnd fagnar stofnun þessa samráðsvettvangs.
Fræðslu- og frístundarnefnd óskar Menntaskólanum á Tröllaskaga til hamingju með tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna 2020 en skólinn er tilnefndur til verðlauna í flokknum Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur.
Bókun fundar
Til máls tóku Elías Pétursson, Særún Hlín Laufeyjardóttir, Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir og Helga Helgadóttir.
Afgreiðsla 90. fundar fræðslu- og frístundanefndar staðfest á 192. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
Bæjarstjórn tekur undir bókun fræðslu- og frístundarnefndar og óskar Menntaskólanum á Tröllaskaga til hamingju með tilnefninguna til Íslensku menntaverðlaunanna 2020.