Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 12. fundur - 20. maí 2020
Málsnúmer 2005007F
Vakta málsnúmer
-
Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 12. fundur - 20. maí 2020
Hreyfivika UMFÍ 2020 verður haldin 25. - 31. maí. Stýrihópur um heilsueflandi samfélag tekur undir hvatningarorð UMFÍ og hvetur fyrirtæki, íbúa, skóla og íþróttafélög til að taka þátt í hreyfingunni. Upplýsingar verða aðgengilegar á heimasíðu Fjallabyggðar auk þess sem hengdar verða upp auglýsingar á fjölförnum stöðum.
Bókun fundar
Afgreiðsla 12. fundar stýrihóps Heilsueflandi samfélags staðfest á 187. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
-
Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 12. fundur - 20. maí 2020
Fjallabyggð fékk úthlutað kr. 300.000 úr Lýðheilsusjóði. Stýrihópur fagnar úthlutuninni.
Bókun fundar
Afgreiðsla 12. fundar stýrihóps Heilsueflandi samfélags staðfest á 187. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
-
Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 12. fundur - 20. maí 2020
Vegna aðstæðna í mars sl. náðist ekki að klára dansnámskeið sem Stýrihópur um heilsueflandi samfélag stóð fyrir í Tjarnarborg. Stefnt er að því að klára námskeiðið næsta haust ef aðstæður leyfa. Þá er einnig stefnt að því að bjóða upp á leiðsögn í líkamsræktum sveitarfélagsins.
Hreyfivika UMFÍ fer fram dagana 25.-31. maí, sjá dagskrárlið 1.
Stýrihópurinn vill hvetja íbúa Fjallabyggðar til heilbrigðis og hreyfingar í sumar og um leið hvetja sveitarfélagið til að huga að göngustígum og fjölförnum gönguleiðum og setja bekki við gönguleiðir.
Bókun fundar
Afgreiðsla 12. fundar stýrihóps Heilsueflandi samfélags staðfest á 187. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum