Ungmennaráð Fjallabyggðar - 15. fundur - 14. nóvember 2017
Málsnúmer 1711009F
Vakta málsnúmer
-
Ungmennaráð Fjallabyggðar - 15. fundur - 14. nóvember 2017
Undir þessum lið sátu varafulltrúar í Ungmennaráði þeir Hörður Ingi Kristjánsson, Haukur Orri Kristjánsson, Karen Ásta Guðmundsdóttir.
Deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála bauð fundarmenn velkomna. Deildarstjóri fór yfir samþykktir fyrir Ungmennaráð Fjallabyggðar og kynnti fundarmönnum fyrirkomulag funda og fundaboðunar.
Aðalfulltrúar kusu úr sínum röðum formann og varaformann. Formaður ráðsins er Kristinn Freyr Ómarsson og varaformaður er Birna Björk Heimisdóttir.
Formaður ráðsins tók við fundarstjórn.
Ákveðið var að fundartími ráðsins yrði síðasta miðvikudag í mánuði kl. 16.30.
Bókun fundar
Afgreiðsla 15. fundar ungmennaráðs staðfest á 152. fundi bæjarstjórnar með 6 atkvæðum.