Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 151. fundur - 6. mars 2013

Málsnúmer 1303003F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 87. fundur - 13.03.2013

Bæjarstjóri, Sigurður Valur Ásbjarnarson gerði grein fyrir fundargerð.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 151. fundur - 6. mars 2013
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögn Fjallabyggðar um drög að reglugerð um eftirlit Umhverfisstofnunar með náttúru landsins. Óskað er eftir því að umsögnin berist eigi síðar en 11. mars næstkomandi.

Nefndin gerir engar athugasemdir við reglugerðardrögin.
Bókun fundar
Afgreiðsla 151. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 87. fundi bæjarstjórnar með 8 atkvæðum.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 151. fundur - 6. mars 2013
Lögð er fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um breytta framtíðarskipan refaveiða á Íslandi.

Nefndin gerir enga athugasemd við þingsályktunartillöguna.
Bókun fundar
Afgreiðsla 151. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 87. fundi bæjarstjórnar með 8 atkvæðum.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 151. fundur - 6. mars 2013
Lögð fram áætlun umhverfisfulltrúa vegna verkefna á opnum svæðum í Fjallabyggð 2013. Umhverfisfulltrúi fór yfir tillögurnar með nefndarmönnum.

Erindi frestað og umhverfisfulltrúa falið að kostnaðarreikna verkefni svo hægt sé að forgangsraða þeim.
Bókun fundar

Til máls tók Bjarkey Gunnarsdóttir.
Afgreiðsla 151. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 87. fundi bæjarstjórnar með 8 atkvæðum.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 151. fundur - 6. mars 2013
Lögð fram ný gjaldskrá vegna sorphirðu í Fjallabyggð.

Erindi samþykkt.
Bókun fundar

Til máls tók Sigurður Valur Ásbjarnarson.
Afgreiðsla 151. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 87. fundi bæjarstjórnar með 8 atkvæðum.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 151. fundur - 6. mars 2013
Lagt fram minnisblað frá Eflu verkfræðistofu, er rekur sögu málsins og stöðu þess og umsögn frá VSI Öryggishönnun og ráðgjöf vegna brunahönnunar orlofshúsa við Þverá.

Af framlögðum gögnum og eftir viðræður við Mannvirkjastofnun hefur afstaða nefndarinnar til málsins breyst. Í framhaldi af því samþykkir nefndin notkun á umræddum samlokueiningum í utanhúsklæðningu húsanna að uppfylltum þeim skilyrðum sem tæknideild hefur lagt fram.
Bókun fundar

Til máls tóku Bjarkey Gunnarsdóttir, Þorbjörn Sigurðsson, Sigurður Valur Ásbjarnarson, Ingvar Erlingsson, Egill Rögnvaldsson, Helga Helgadóttir og Ólafur H. Marteinsson.
Á grundvelli 1. liðs minnisblaðs deildarstjóra tæknideildar um að húsin uppfylli almennar brunavarnarkröfur skv. byggingarreglugerð, samþykkir bæjarstjórn með 8 atkvæðum afgreiðslu 151. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 151. fundur - 6. mars 2013
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir grunnskólareit á Þormóðseyri sem afmarkast af Norðurgötu, Eyrargötu, Vetrarbraut og Aðalgötu. Lagt er til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þ.e. í Lögbirtingablaðinu og með áberandi hætti í dagblaði sem gefið er út á landsvísu. Athugasemdafrestur skal eigi vera skemmri en sex vikur frá birtingu auglýsingar.

Erindi samþykkt.
Bókun fundar

87. fundur bæjarstjórnar samþykkir með 8 atkvæðum að auglýsa tillöguna ”Deiliskipulag - Skólareitur Siglufirði“ til kynningar skv. 41. gr. skipulagslaga, enda er ekki talin þörf á forkynningu þar sem meginforsendur hennar liggja fyrir í aðalskipulagi.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 151. fundur - 6. mars 2013
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hóls- og Skarðsdals.

Samkvæmt 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 leggur nefndin til við bæjarstjórn að hún samþykki erindið og auglýsing um samþykki deiliskipulagsins verði birt í B-deild Stjórnartíðinda skv. 4. mgr. 44. gr. fyrrnefndra laga.
Bókun fundar

Afgreiðsla 151. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 87. fundi bæjarstjórnar með 8 atkvæðum.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 151. fundur - 6. mars 2013
Til tæknideildar bæjarfélagsins hefur leitað verktaki sem hefur áhuga á því að byggja raðhús við Gránugötu 12 á Siglufirði.

Þar sem ekkert deiliskipulag er til fyrir svæðið samþykkir nefndin að framkvæmdin verði grenndarkynnt aðliggjandi lóðarhöfum skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur tæknideild að grenndarkynna framkvæmdina.
Bókun fundar

Til máls tók Ingvar Erlingsson.
Afgreiðsla 151. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 87. fundi bæjarstjórnar með 8 atkvæðum.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 151. fundur - 6. mars 2013
Vernharður Skarphéðinsson sækir um byggingarleyfi fyrir hús sem hann hyggst byggja á lóð nr. 4 við Hafnargötu á grundvelli byggingarreglugerðar nr. 441/1998.

Þar sem ekkert deiliskipulag er til fyrir svæðið samþykkir nefndin að framkvæmdin verði grenndarkynnt aðliggjandi lóðarhöfum skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur tæknideild að grenndarkynna framkvæmdina.
Bókun fundar

Til máls tók Ingvar Erlingsson.
Afgreiðsla 151. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 87. fundi bæjarstjórnar með 8 atkvæðum.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 151. fundur - 6. mars 2013
Þorvaldur Hreinsson f.h. stjórnar hestamannafélagsins Gnýfara óskar eftir því, skv. meðfylgjandi teikningum, að útidyrahurð á reiðskemmu félagsins að Faxavöllum 9 verði staðsett á austurhlið hússins í stað suðurhliðar eins og upphaflegar teikningar gerðu ráð fyrir.

Ásgrímur Pálmason vék af fundi undir þessum lið.

Erindi samþykkt.
Bókun fundar
Afgreiðsla 151. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 87. fundi bæjarstjórnar með 8 atkvæðum.

• Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 151. fundur - 6. mars 2013
Lögð fram til kynningar umfjöllun Garðars Snæbjörnssonar arkitekts um Hótel Sunnu.
Bókun fundar
Afgreiðsla 151. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 87. fundi bæjarstjórnar með 8 atkvæðum.